BRÚKS
Markaðstorg fyrir notaðar hönnunarvörur (stundum nýjar), gæðavörur og handverk.
Markmiðið er að skapa vettvang þar sem fólk getur með auðveldum hætti keypt og selt notaðar, vandaðar, sígildar og einstakar vörur.
UM BRÚKS
Brúks hvetur fólk til að koma þeim hlutum sem það hefur ekki lengur þörf á í áframhaldandi brúk með því að setja þær í sölu á markaðstorginu. Með því að auka líftíma slíkra gripa verður dregið úr framleiðslu nýrra vara, ofnýtingu á auðlindum og losun gróðurhúsalofttegunda.
Aukin meðvitund um umhverfi okkar og mikilvægi umhverfisverndar er nauðsynleg. Með því að stunda og stuðla að sjálfbærari lífsstíl í samfélagi þar sem fólk metur gæði umfram magn.
Brúks stuðlar að því að lengja líftíma hágæða vara og draga úr því magni sem fargað er og urðað. Það er þýðingarmikill þáttur í því að efla vitund um mikilvægi umhverfisvernda í samfélaginu. Gildi hringrásarhagkerfisins er óumdeilt og Brúks mun leggja sitt á vogarskálarnar.
Nafnið Brúks kemur frá orðinu „brúk“, sem er gamalt og gilt íslenskt orð yfir notkun eða nýtingu. Brúks fangar einmitt þetta gamla íslenska hugtak og tengir það við nútímann á merkingarfullan hátt, sbr. þessi hlutur er enn góður til brúks; ég hef ekki lengur brúk fyrir þetta og ætla því að selja á Brúks. Með því að nota þetta orð í nafninu okkar minnum við á mikilvægi þess að varðveita og endurnýta eða endurbrúka hluti, líkt og fyrri kynslóðir gerðu. Nafnið er því tákn um sögu, menningu og sjálfbærni, sem eru lykilatriði í starfsemi Brúks.
Ertu með spurningu eða ábendingu?
Sendu okkur skilaboð!