algengar spurningar
FAQ
Hvað er BRÚKS?
Brúks er nýtt íslenskt markaðstorg á netinu fyrir notaðar (stundum nýjar) gæðavörur og handverk.
Endurnotkun góðra og vandaðra hluta er ávinningur bæði til skemmri og lengri tíma. Með því er hægt að sporna við þeirri sóun sem felst í fjöldaframleiðslu og sölu ódýrra vara, sem oftast hafa stuttan líftíma.
Leiðarljós Brúks
– að nýta betur
– að brúka lengur
– að hafa það hyggilega huggulegt!
Afhverju að selja á BRÚKS?
Sýnileiki vöru – Vörur eru birtar á markaðstorgi Brúks og við auglýsum vörur á helstu samfélagsmiðlum og í markaðsherferðum.
Örugg viðskipti – Brúks leggur mikla áherslu á einfaldan og öruggan greiðslumáta, bæði fyrir kaupendur og seljendur. Greiðsla berst seljanda að lokinni afhendingu vörunnar til kaupanda.
Flokkun – Á Brúks eru allir munir flokkaðir á skipulegan hátt til þess að einfalda leit á síðunni og þannig auka líkur á að kaupandi finni það sem hann leitar að.
Gæði – Brúks leggur áherslu á gæði þeirra vara sem eru til sölu á síðunni, auk skýrrar vörulýsingar til að auðvelda kaupendum val og tryggja ánægju þeirra.
Umhverfisvæn viðskipti – Með því að selja og kaupa á Brúks er vörum gefið nýtt líf og þar með stuðlað að umhverfisvænni neyslu.
Tenging við póstþjónustu – Kaupendur geta óskað eftir póstþjónustu um leið og þeir velja vöruna, bjóði seljandi upp á slíkt. Póstsendingargjaldið er háð upplýsingum seljanda um stærð og umfang vörunnar og leggst gjaldið þá á söluverðið. Seljandi getur líka valið að bjóða ekki upp á sendingu með pósti.
Þjónusta við myndatöku eða skráningu?
Okkur hjá Brúks er ljóst að það getur verið tímafrekt og krefjandi að skrá muni til sölu. Ekki síst þegar um er að ræða stærra safn muna eða dánarbú. Við bjóðum því upp á aðstoð við myndatöku, verðlagningu og vöruskráningu.
Hafðu samband við okkur á bruks@bruks.is til að fá nánari upplýsingar.
Athugið að um gjaldskylda þjónustu er að ræða.
Hvernig vörur eru á BRÚKS?
Stefna Brúks er að bjóða upp á markaðstorg með notuðum gæðavörum og handverki. Markmiðið er að skapa vettvang þar sem fólk getur auðveldlega keypt og selt notaðar, klassískar og einstakar vörur, allt frá húsgögnum, ljósum, textíl og listaverkum til gluggaramma og hurðarhúna.
Fjöldaframleiddar hraðtískuvörur (fast fashion) sem eru til sölu í verslunum eða á netinu (innan lands eða utan) verða ekki samþykktar til sölu á Brúks.
Hönnunarvörur og vandaðir og endingargóðir munir eiga hins vegar að jafnaði greiðan inngang á markaðstorgið, sem og vörur sem kallast „vintage“ og antík vörur. Allar vörur verða þó að vera í ásættanlegu ástandi, þannig að þær nýtist kaupanda án mikils tilkostnaðar og lagfæringa, nema annað sé tekið fram. Þá skiptir mjög miklu máli að skrá réttar upplýsingar við vöruskráningu.
Farið er í gegnum allar vörur sem skráðar eru og þær samþykktar áður en þær birtast á síðunni.
Vöruskráning á BRÚKS?
Á markaðstorginu Brúks er mikil áhersla lögð á að tryggja gæði þeirra vara sem eru í boði og áreiðanleika þeirra upplýsinga sem seljendur gefa um vörurnar. Þannig eiga kaupendur að geta treyst því að allar vörur á Brúks séu í því ástandi sem lýst er. Þess vegna er mikilvægt fyrir seljendur að fylgja ákveðnum verklagsreglum við skráningu vara til sölu. Sjá leiðbeiningar.
Söluþóknun BRÚKS?
Það kostar ekkert að skrá vörur á Brúks, en tekin er 15% þóknun af söluverði hverrar vöru. Upphæðin dregst frá sölu áður en andvirði er greitt til seljanda. Brúks leggur metnað í að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu:
Sýnileiki – Vörur þínar eru birtar á Brúks og eru jafnframt flokkaðar með skipulegum hætti.
Auglýsingar og birting á samfélagsmiðlum – Með markvissum hætti auglýsir Brúks þær vörur sem eru á síðunni. Þetta á við á samfélagsmiðlum og í auglýsingum. Vörurnar fá þannig aukinn sýnileika og ná þannig til stærri hóps mögulegra kaupenda.
Öflug leit – Mikilvægt er að auðvelda skoðun á þeim og öðrum munum og á Brúks má leita með einföldum hætti eftir tilteknum flokkum (t.d. stíll, litir, efni, tímabil, hönnuðir, framleiðendur o.fl.).
Örugg viðskipti – Við tryggjum að viðskiptin séu einföld og örugg fyrir bæði seljanda og kaupendur. Allar greiðslufærslur fara í gegnum örugg og áreiðanleg greiðslukerfi.
Tenging við póstþjónustu – Kaupendur geta óskað eftir póstþjónustu um leið og þeir velja vöruna, bjóði seljandi upp á slíkt. Póstsendingargjaldið er háð upplýsingum seljanda um stærð og umfang vörunnar og leggst gjaldið þá á söluverðið. Seljandi getur líka valið að bjóða ekki upp á sendingu með pósti.
Sendingar?
Seljandi ákveður hvort hann vilji bjóða upp á sendingu með Pósti eða leyfa kaupanda að sækja til sín vöru. Sendingarferlið er mjög einfalt. Sjá leiðbeiningar.