Ycami

Vörusíur

ALLRA NÝJASTA

  • Boogie Woogie hillur – Stefano Giovannoni

    60.000 kr.

    Hannaðar af Stefano Giovannoni fyrir Magis á Ítalíu.

    Stefano er ítalskur iðnhönnuður og arkitekt, þekktur fyrir leikandi og framsækna nálgun á nytjahlutum. Hann hefur hannað fyrir fjölda þekktra ítalskra framleiðenda eins og Alessi, Magis og Kartell. Verk hans sameina oft mjúkar línur, líflega liti og einstakan karakter, með skýra vísun í poppmenningu og hversdagslegt notagildi.

    Boogie Woogie hillurnar endurspegla þessa nálgun — með bylgjulöguðu formi, háglans áferð og sveigjanleika sem gerir þær jafnframt að hagnýtum og sjónrænt sterkum hönnunarhlutum.

    Sjaldgæfar, staflanlegar hillueiningar úr glansandi ABS-plasti. Hver kubbur er sjálfstæður og hægt að raða þeim saman eftir þörfum. Innri hæð hvers kubbs er u.þ.b. 33 cm, sem hentar vel undir bækur eða skrautmuni.

    Heildarstærð þriggja eininga er ca. 156 cm á hæð.

  • Svartur leðursófi

    150.000 kr.

    Fallegur leðursófi úr Halland línunni frá IKEA, framleidd á snemma tíunda áratugnum. Sófinn er klæddur með þykku buffalo-leðri sem hefur fengið fallega náttúrulega patínu með aldrinum. Patchwork bakhlið. Djúpt sæti og lágt bak – fullkomið í afslappað rými. Sætishæð 42 cm.

  • 1,5 Hægindastóll

    105.000 kr.

    Dökkbrúnn ítalskur hægindastóll úr fallegu þykku leðri.

  • Grænn stór blómavasi

    14.000 kr.

    Stór og glæsilegur vasi úr handblásnu mattgrænu gleri, umlukinn málmgrind með fallegri patínu. Virkar bæði sem blómavasi og skrautskúlptúr. Glerið er heilt og grindin stöðug.

  • Hliðarborð

    14.000 kr.
  • Tekk kommóða

    76.000 kr.

    Klassísk fjögurra skúffna tekk kommóða með innfelldum handföngum og koparhlífum á fótum. Tímalaus skandinavísk hönnun frá 6. áratugnum. Lítið brot er á handfangi neðst (sjá mynd), en kommóðan er í góðu og nothæfu ástandi.

  • Leirvasi

    17.000 kr.

    Íslenskur handgerður keramikvasi

  • Blár vasi

    5.000 kr.
  • Platon/Cajus – Tomas Jelinek

    95.000 kr.

    Platon/Cajus borð hannað af Tomas Jelinek fyrir IKEA árið 1984.
    Hæðin er stillanleg og borðið hentar bæði sem sófaborð, skrifborð og borðstofuborð. Með reyklitaðri fasaðri glerplötu og krómgrind.

  • Kollur með hirslu

    15.000 kr.
Karfan mín
Scroll to Top