Alfonso Otero Regal

Vörusíur

ALLRA NÝJASTA

  • Borðstofusett og skenkur

    125.000 kr.

    Borðstofuborð og skenkur. Keypt í Reykjavík kringum 1955 og mjög vel með farið. Sex stólar fylgja borðinu og komið smá slit á suma stólana og skemmdur einn pinni á einum þeirra. Fylgja þrjár plötur til stækkunar. Málin á borðinu eru 125×90 cm og plöturnar eru 49×90. Skenkurinn er 170 cm á breidd, 120 cm á hæð og dýpt 39 cm.

  • Rúm og náttborð

    50.000 kr.

    Rúm og 2 náttborð frá 1950. Rúmið er 190 x 152 cm (mál á dýnum (2 stk) 187 x 75 cm). Náttborð breidd 50 cm, hæð 53 cm og dýpt 36 cm.

  • B&B Italia – Alanda sófaborð

    300.000 kr.

    Er með þetta fallega borð til sölu, það er alveg nýtt.

    Þetta er hönnunarborð sem kom fyrst á markað á sjöunda áratugnum en var gefið út á ný árið 2018 til heiðurs Paolo Piva.

    Borðið er 120 x 120 cm að stærð og 27 cm á hæð. Það fæst gegn sérpöntun í Casa og má sjá nánar um það hér: https://casa.is/vefverslun/husgogn/bord/sofabord/bb-italia-alanda-sofabord-120x120cm/

  • Messing skál

    2.500 kr.
    Vandaður messing skál eða blómapottur á fæti. Miðlungsstór og í mjög góðu standi
  • Vatnskanna • Derby Harlequin

    3.500 kr.

    Falleg handgerð vatnskanna frá Denby Harlequin sægræn með kónkabláum slettum að utan og kóngablá að innan.

    Minni háttar sprunga frá kannti ská yfir háls, sést mjög lítið. Í mjög góðu standi annars.

  • Magna – Habitat

    20.000 kr.

    Svarbrún Habitat hillueining úr eikarhúðaðri og matt pólýúretanlakkaðri spónaplötu. 5 snúningshjól úr stáli, þar af 2 með bremsum. Þessi grunna geymslueining (16 box) er framleidd í Evrópu. Hillan nýtist á ýmsa vegu og rúmar bækur, plötur eða smáhluti. Hægt að nota sem færanlegan millivegg (hjól fylgja) í stóru rými eða við vegg í stofu, barnaherbergi eða á skrifstofu. Hægt að skrúfa sundur og flytja í flötum pakka.

  • Magna – Habitat

    15.000 kr.

    Hvít Magna Habitat hillueining úr melamin- og pólýúretan-hálakkaðri spónaplötu. 5 snúningshjól úr stáli, þar af 2 með bremsum. Þessi grunna geymslueining (8 box) er framleidd í Evrópu. Hillan nýtist á ýmsa vegu og rúmar bækur, plötur eða smáhluti. Hægt að nota sem færanlegan millivegg (hjól fylgja) í stóru rými eða við vegg í stofu, barnaherbergi eða á skrifstofu. Hægt að skrúfa sundur og flytja í flötum pakka.

  • Járnspegill

    195.000 kr.

    Einstakur spegill með sterkan karakter, búinn til úr gömlum járngluggakarmi.
    Gluggaskiptingarnar gefa speglinum hrátt og stílhreint útlit sem setur sterkan svip á hvaða rými sem er.

    stæðr 107 x 160 cm

  • Gólflampi

    160.000 kr.

    Þessi glæsilegi bogalampi sameinar tímalaust form og nútímalegt yfirbragð. Með glansandi krómáferð, bogalaga armi og kúptum skermi er hann bæði stílhreinn og praktískur. Lampinn veitir fallega niðurbeinda lýsingu og er fullkominn sem lýsingarlausn yfir borð eða setusvæði án þess að þurfa loftfestingu.

  • Saumastóll frá USA

    50.000 kr.

    Sterkur og stílhreinn Saumastóll sem hentar fullkomlega í vinnustofuna, verkstæðið eða heimilið. Stóllinn er með stillanlegri hæð, úr stáli og með einföldu, industrial útliti.

Karfan mín
Scroll to Top