Leiðbeiningar
fyrir notendur Brúks
1. NÝSKRÁNING - AÐGANGUR
Nýskráning á Brúks fer fram á https://bruks.is/stjornbord neðst á síðunni.
Gott er að byrja á því að skrá greiðsluupplýsingar áður en vörur eru skráðar til að tryggja greiðslu. Finnst á stjórnborði undir Greiðsla.
2. SKRÁ VÖRU Á SÖLU
Úr valmynd vinstra megin velur notandi Vörur og smellir á hnappinn Skrá nýja vöru. Þá birtist eftirfarandi:
Vöruheiti
Notandi velur vöruheiti sjálfur
Verð vöru
Notandi velur verð á vöru sjálfur
Vöruflokkur
Notandi skráir þann vöruflokk sem á við að hverju sinni.
Myndir af vöru (forsíðumynd og gallerí) hægra megin á síðu.
Notandi skráir myndir af vörunni sem eru lýsandi um ástand hennar. Ráðlagt er að mynda vöru við góð birtuskilyrði, taka mismunandi sjónarhorn, úr fjarlægð og nærmyndir. Þá er gott að sýna inn í húsgögn svo sem skápa eða skúffur.
Stutt lýsing
Texti um vöru, athugasemdir ofl. kjósi notandi að skrifa slíkt.
Birgðir
(magn/fjöldi)
Sendingar
Ráðlagt er að skrá upplýsingar um umfang vörunnar (þyngd, hæð, breidd og lengd) sérstaklega á það við ef notandi býður upp á sendingu með póstinum.
Rétt þyngd eða rúmmálsþyngd tryggir réttan sendingarkostnað, ef kaupandi velur að nota sendingarþjónustu og stuðlar að því að kaupendur fái vöruna afhenta á tilsettum tíma án óvæntra tafa eða kostnaðarauka. (Flutningsfyrirtæki miða verð sendinga við þyngd eða rúmmálsþyngd (hærri talan gildir). Hægt er að reikna út rúmmálsþyngd á vefsíðu Póstsins).
3. EINKENNI
Sýnileiki vöru eykst með því að skrá vöru skýrt og skilmerkilega. Þar spila einkenni og merkingar stóran þátt.
Notandi velur úr valmynd viðeigandi einkenni og velur “Bæta við” – því næst eru gildi viðeigandi einkenna skráð.
Einkenni eru:
Ástand
Efni
Fjöldi í setti
Framleiðandi
Hönnuður
Litur
Rými
Má sækja?
Stíll
Tímabil
Upprunaland
4. VÖRUBIRTING
Þegar notandi hefur staðfest skráningu upplýsinga um vöruna bíður hún samþykkis Brúks. Samþykki um sölu á markaðstorginu snýst um að uppfylla gæðakröfur, (sjá FAQ) til að tryggja að Brúks verði áreiðanlegt og traust markaðstorg fyrir notaðar gæðavörur.
Notandi getur fylgst með á síðu sinni, þar sem staðan verður kynnt á eftirfarandi hátt:
Í bið – varan hefur verið skráð, en bíður samþykkis Brúks.
Í birtingu – vara er samþykkt og birt á síðu.
Ekki í birtingu – vara uppfyllir ekki kröfur eða vantar upplýsingar. Brúks skilur eftir skilaboð í vörulýsingu.
5. GREIÐSLA
Þegar söluaðili hefur afhent vöru skal hann haka við “Afgreitt” á sinni pöntunarsíðu. Þá er mikilvægt að senda staðfestingu á afhendingu á bruks@bruks.is.
ATH. Seljandi þarf að skrá sínar greiðsluupplýsingar á sínum síðum undir “Greiðsla”
Söluaðili fær greitt fyrir selda vöru 1 degi eftir að kaupandi hefur móttekið vöruna og birtist greiðsla á næsta virka degi.
Brúks tekur söluþóknun af öllum vörum. Þóknunin sem nemur 17% af söluverði hverrar vöru, verður dregin frá sölu áður en andvirði er greitt til seljanda.