Brúnn
Sýna 22–42 af 84 niðurstöðurSorted by latest
-
Eggjabikarasett
8.000 kr.Fallegt og skemmtilegt eggjabakkasett. Settið samanstendur af sex eggjaskálum, hver með sínum karakter, ásamt standi sem hægt er að stafla þeim á. Einstakur eldhúsmunur sem sameinar nytsemi og fagurfræði.
-
Skartgripahirsla útskorin
Gullfalleg útskorin viðar-skartgripahirsla með 8 fóðruðum skúffum.
-
Stór skemill
Einstakur veglegur vintage skemill með feldáklæði og tekkfótum. Stærð 65x65x47
-
Thonet stólar
Upprunalegir merktir stólar frá Thonet, líklega smíðaðir á millistríðsárunum, um 1920–1930.
Þessir klassísku formbeygðu stólar eru vandað handverk og endurspegla þá hugmyndafræði sem gerði Thonet að einni áhrifamestu húsgagnaverksmiðju sögunnar: einfaldleika í formi, nákvæmni í smíði og gæði sem standast tímans tönn. Bakið er úr heilum, örlítið sveigðum við, sem gefur stólnum sterk og stílhrein form með mjúkum línum og léttu yfirbragði. Þeir eru jafnt hagnýtir sem þeir eru fallegir – stólar sem falla að margvíslegum rýmum þar sem gæði og hönnun fá að njóta sín. -
EJ220 – Erik Jørgensen
330.000 kr.EJ220 var hannaður árið 1970 af Erik Jørgensen, stofnanda Erik Jørgensen Møbelfabrik. Markmið Eriks var að brjótast frá hefðbundinni sófahönnun þess tíma og skapa sófa með hreinum línum og mjúkum púðum. Sígildur danskur hönnunargripur, þekktur fyrir tímalausa glæsileika og náttúrulegt þægindi.
Brúnn 3 sæta
Kostar nýr um 700.000 kr
Sófinn var keyptur 2004 eða 2005 -
Ruggustóll með Salún áklæði
64.000 kr.Original price was: 64.000 kr..32.000 kr.Current price is: 32.000 kr..Glæsilegur ruggustóll með fallegu Salún vönduðu ullaráklæði.
-
Buster – Tommy M 4ra sæta
450.000 kr.Einstaklega fallegur sófi hannaður af Tommy M. Sófinn er 241 x 93 cm, í villtu annelín leðri sem er handvalið og unnið. Var keyptur í Heimahúsinu árið 2019. Mjög vel farinn, nánast eins og nýr.
-
Leirvasi
8.000 kr. -
Tekk kommóða
Klassísk fjögurra skúffa tekk kommóða með innfelldum handföngum og koparhlífum á fótum. Tímalaus skandinavísk hönnun frá 6. áratugnum. Lítið brot er á handfangi neðst (sjá mynd).
-
About a Lounge – HAY
150.000 kr.About A Lounge Chair einkennist af mjúkum, lífrænum línum og vel útfærðu formi sem skapar hlýlegt og aðlaðandi yfirbragð í hvaða rými sem er.
-
Antík skápur
Gullfallegur antík skápur með glerhurð og glerhillum.
-
Flamestone Fluted Brown – Jens Harald Quistgaard
75.000 kr.Fluted Flamestone brúna stellið frá Dansk Designs er eitt af helstu verkum danska hönnuðarins Jens Harald Quistgaard, sem var aðalhönnuður fyrirtækisins frá 1954 í þrjá áratugi. Þetta steinleirstell var hannað árið 1958 og einkennist af dökkbrúnu, mattu gljálausu yfirborði með lóðréttum rennilínum sem gefa því sérstakt yfirbragð. Stellið sameinar skandinavíska einfaldleika og notagildi og var framleitt í Danmörku.
Inniheldur:
18 kaffibolla ásamt undirskálum
21 kökudiska
1 sykurkar -
“Linus” stólar (4 saman)
60.000 kr.Original price was: 60.000 kr..40.000 kr.Current price is: 40.000 kr..Í anda Carlo Graffi & Franco Campo. Allir alveg heilir nema einn sem er með litlu sári í setunni. (Sjá mynd)
-
Collie – Lefton Japan
Lefton Exclusives Japan – merktur H7328
ca. 1950
-
Furuskenkur
Glæsilegur furuskenkur stærð 152 B x 40 D x 95 H
ALLRA NÝJASTA
-
Opus barstólar (2 saman) – Pelikan Design
40.000 kr. -
Cantilever stóll
Brúnn Mart Stam stóll með kúaskinni – merktur Made in Italy
-
Juicy Salif – Philippe Starck, Alessi
11.500 kr. -
Gler og krómborð
72.000 kr. -
Króm loftljós
25.000 kr. -
Strips/Lakene – Brylle & Jacobsen
44.000 kr.Strips ljósið var hannað af Flemming Brylle og Preben Jacobsen
-
Blaðagrind
18.000 kr. -
Fléttaður stóll
48.000 kr. -
70’s sófasett
370.000 kr.Einstaklega vel varðveitt sófasett frá áttunda áratug síðustu aldar, klætt upprunalegu velúr áklæði í hlýjum jarðlitum. Settið samanstendur af tveggja sæta sófa og hægindastól og selst saman. Ástand er mjög gott. Engin sjáanleg slit, rifur eða aflögun eru til staðar og áklæðið er jafnt og hreint. Heildaryfirbragð settsins ber með sér vandaða notkun og góða umhirðu.


















