NOTENDASKILMÁLAR BRÚKS

Velkomin á Brúks (bruks.is)

Brúks er íslenskt markaðstorg fyrir notaða gæðavöru og handverk.
Brúks er í eigu Kima studio slf. kt: 540223-1300.

Notendur Brúks skulu vera 18 ára eða eldri, lögráða, sjálfráða og fjárráða; Brúks ber enga ábyrgð á notkun þeirra sem ekki uppfylla þessi skilyrði.

Mikilvægt er að kynna sér notendaskilmálana vel, áður en óskað er eftir aðgangi að síðunni. Brúks áskilur sér rétt til að breyta þeim hvenær sem er. Breytingar taka gildi við birtingu þeirra á vefsíðunni bruks.is. Notendur eru því hvattir til að skoða skilmálana reglulega til að vera upplýstir um breytingar. Brúks áskilur sér rétt til að loka aðgangi hjá þeim sem brjóta gegn skilmálum og reglum. Brúks getur ekki ábyrgst að vefsíðan eða efni hennar verði alltaf tiltækt eða ótruflað. Við kunnum að þurfa að loka eða takmarka aðgengi að vefsíðunni, eða hlutum hennar án fyrirvara. Ef vefsíða eða þjónusta Brúks er tímabundið óaðgengileg vegna tæknilegra örðugleika, ber Brúks ekki ábyrgð á þeim óþægindum sem notendur kunna að hafa af því.

Þessi útgáfa á skilmálum er í gildi frá 1. júlí 2024.

Aðgangur á Brúks

Til að kaupa og selja vörur á Brúks verður að stofna aðgang. Það kostar ekkert að búa til aðgang á Brúks.

Hver notandi má aðeins hafa einn virkan aðgang í einu, hann er persónubundinn og honum má ekki deila. Með stofnun aðgangs samþykkir þú að veita réttar og áreiðanlegar upplýsingar og viðhalda þeim uppfærðum. Óheimilt er að falsa nafn og persónuupplýsingar við skráningu. Notandi einn er ábyrgur fyrir öryggi aðgangs síns, upplýsingum og öllum aðgerðum sem gerðar eru í gegnum hann. Notandi er ábyrgur fyrir því að gefa réttar upplýsingar til skattsins vegna sölu á Brúks.

Brúks áskilur sér rétt til að loka/eyða aðgangi ef notandi brýtur gegn skilmálum Brúks. Það á líka við ef persónuupplýsingar reynast rangar eða þjónusta misnotuð. Þá áskilur Brúks sér einnig rétt til að fjarlægja vörur eða upplýsingar sem metnar eru skaðlegar fyrir ímynd eða staðla fyrirtækisins.

Notendum ber skylda til að tilkynna grun um misnotkun á notendaaðgangi. Verði notendur uppvísir að sviksamlegu athæfi við kaup eða sölu á Brúks verður þar tafarlaust tilkynnt til lögreglu.

Verð og greiðslur

Verðlagning er á ábyrgð seljanda sem ákvarðar verð vörunnar. Sendingarkostnaður leggst síðan ofan á verð vöru. 

Þegar vara er skráð á Brúks ábyrgist seljandi að varan sé tilbúin til afhendingar og veitir jafnframt samþykki sitt fyrir því að Brúks taki á móti greiðslu frá kaupanda. 

Greiðslur fara fram með millifærslu á bankareikning Brúks. Seljandi fær greiðslu fyrir sína vöru þegar kaupandi hefur borgað og staðfest móttöku vöru án athugasemda. 

Þóknun sem nemur 17% af söluverði hverrar vöru, verður dregin frá sölu áður en andvirði er greitt til seljanda. 

Ef notandi verður uppvís að því að færa samskipti um skráða vöru af Brúks til að komast hjá greiðsluþóknun telst það vera brot á notendaskilmálum og áskilur Brúks sér rétt til þess að loka aðgangi og banna viðkomandi frekari notkun á markaðstorginu. Verði notandi uppvís að því að brjóta skilmála með öðrum hætti hefur Brúks einnig heimild til að loka aðgangi viðkomandi.

Afhending á vöru

Þegar gengið er frá pöntun er hægt að velja um leiðir til að afhenda og senda vöru. 

Afhending seldrar vöru er á ábyrgð seljanda. 

Seljandi skal ávallt leitast við að tryggja að afhending vöru til kaupanda eða póstþjónustu innan 5 daga frá sölu.

Senda með póstþjónustu Mikilvægt er að skrá réttar og nákvæmar upplýsingar eins og skýrt er frá í leiðbeiningum, bæði á það við um sendingarmöguleika og um stærð/þyngd vöru.

Seljandi verður að tryggja öruggar umbúðir vöru til að koma í veg fyrir skemmdir í flutningi og ábyrgjast öll gögn sem tengjast vörusendingum (staðfestingu póstsendinga, sendingarnúmer o.s.frv.) í þeim tilfellum sem póstþjónusta er nýtt. 

Mikilvægt er að fylgja leiðbeiningum um skráningu vöru svo að reiknivél á greiðslusíðu virki sem skyldi varðandi sendingarkostnað. Ef reglum um skráningu vöru (stærð og þyngd) er ekki fylgt getur það haft áhrif á vörusendingu og getur seljandi einn ábyrgst það. Um ábyrgð á vörum sem dreift er af flutningsaðila, gilda ábyrgðar- og flutningsskilmálar viðkomandi flutningsaðila.

Brúks ber enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi.

Vilji seljandi ekki bjóða upp á að senda með pósti passar hann að haka úr ” Möguleiki á sendingu með pósti.”

Sækja vöru Seljandi skráir í “Einkenni” við vöru “Má sækja?” Já eða nei.

Skilafrestur og endurgreiðsla

Mikilvægt er að kaupandi kynni sér vel ástand vöru og upplýsingar sem seljandi veitir. Seljandi ber ábyrgð á því að lýsing vöru sé nákvæm og í samræmi við raunverulegt ástand hennar, bæði í textalýsingu og með myndum. 

Þóknun Brúks verður ekki endurgreidd eftir að kaup hafa átt sér stað, jafnvel þó kaupandi og seljandi komi sér saman um skil á vöru. Það sama gildir þegar seljandi getur ekki afhent auglýsta vöru. Ef seljandi auglýsir vöru sem hann getur ekki afhent  ber honum að endurgreiða kaupanda heildarkaupverð, nema aðilar komist að öðru samkomulagi.

Brúks er ekki milliliður í skilum eða endurgreiðslu á vöru. Úr slíkum málum verða seljendur og kaupendur sjálfir að leysa.

Ef ágreiningur rís

Komi upp ágreiningur milli seljanda og kaupanda skulu þeir fyrst reyna að leysa málið sín á milli. Gangi það ekki, er hægt að tilkynna málið til Brúks í gegnum hjalp@bruks.is (heiti skilaboða “Tilkynna ágreining”). Í framhaldinu verður málið skoðað og reynt eftir bestu getu að leiðbeina við úrlausn máls í samræmi við notendaskilmála og íslensk lög.

Athugið að tilkynna verður slíkan ágreining innan 14 daga frá afhendingu vöru. Ef viðskipti eru tilkynnt eftir þann tíma áskilur Brúks sér rétt til að hafna aðkomu að máli. Þá hafnar Brúks alfarið aðkomu að málum þar sem viðskipti hafa farið fram utan vefsíðu Brúks. Séu reglum og skilmálum Brúks ekki fylgt eftir við notkun vefsíðu eða við viðskipti áskilur Brúks sér rétt til að loka aðgangi þeirra notenda.

Annað

Seljandi á Brúks ber alfarið ábyrgð á því að sala vöru, vörulýsing, og samskipti tengd viðskiptum brjóti ekki gegn hugverkarétti, íslenskum lögum, séu hvorki villandi né móðgandi og innihaldi hvorki klámfengið né ólöglegt efni. Brúks áskilur sér rétt að loka aðgangi án fyrirvara verði notandi uppvís um slíkt og mun tafarlaust hafa samband við lögreglu þyki þess þörf.

Allt efni á heimasíðu, Facebook og Instagram síðu Brúks er verndað af hugverkarétti. Þetta nær til allra mynda, texta, hönnunar, grafískrar framsetningar og allra annarra upplýsinga sem birtast á þessum miðlum. Notkun, afritun eða dreifing á þessu efni er ekki heimil án leyfis frá Brúks. Allur réttur er áskilinn Brúks.

Þá er notendum aðeins heimilt að nota efni sem er aðgengilegt á vefsíðu Brúks til persónulegra nota. Notendum er með öllu óheimilt að nota efnið eða hluta þess í viðskiptalegum tilgangi, án þess að fá leyfi til þess.
Ef spurningar vakna um skilmála þessa er sjálfsagt að hafa samband í gegnum netfangið hjalp@bruks.is.

Karfan mín
Scroll to Top