PERSÓNUVERNDARSTEFNA BRÚKS

Við hjá Brúks.is leggjum mikla áherslu á að vernda persónuupplýsingar notenda okkar. Í persónuverndarstefnu okkar kemur fram hvernig við söfnum, notum og verndum persónuupplýsingar þínar í tengslum við notkun á vefsíðunni okkar. Með því að að stofna aðgang að Brúks á vefsíðunn samþykkir þú þessa stefnu.

 

Upplýsingasöfnun

Við söfnum persónuupplýsingum til að veita notendum okkar betri þjónustu og bæta upplifun þeirra á Brúks.is. Þær upplýsingar eru m.a.

  • nafn
  • netfang
  • heimilisfang
  • símanúmer
  • greiðsluupplýsingar
  • notkunarupplýsingar (t.d. IP-tala, vafragögn, og notkunarmynstur)

 

Notkun upplýsinga

Persónuupplýsingar, sem safnað er, nýtast til að

  • veita, reka og viðhalda þjónustu okkar
  • auðvelda kaup og sölu á vefsíðunni
  • senda þér upplýsingar um reikninginn þinn og þjónustu
  • svara fyrirspurnum og veita stuðning
  • bæta og sérsníða þjónustuna okkar
  • senda markaðsefni, ef þú hefur gefið leyfi til þess

 

Deiling upplýsinga

Við deilum þínum persónuupplýsingum aðeins með þínu samþykki (sem þú gefur við notkun síðunnar bruks.is) og þá í eftirfarandi tilvikum:

  • til að uppfylla lagaskyldur
  • til að vernda réttindi okkar og eigur
  • til þjónustuveitenda sem styðja vefsíðunotkun (t.d. greiðslugáttir).

 

Öryggi upplýsinga

Öryggi persónuupplýsinga er mikilvægt og við notum viðeigandi tæknilegar og skipulegar ráðstafanir til að vernda þær gegn óviðkomandi aðgangi, breytingum, birtingu eða eyðingu.

 

Vafrakökur (cookies)

Brúks.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifunina. Vafrakökur eru litlar textaskrár sem eru geymdar á tækinu þínu þegar þú heimsækir vefsíðuna. Þær hjálpa okkur að muna val þitt og skilja hvernig þú notar vefsíðuna. Þú getur stjórnað vafrakökum í stillingum vafrans þíns, en athugið að sumir hlutar síðunnar gætu ekki virkað rétt ef þú slekkur á vafrakökum.

 

Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá upplýsingar um hvaða persónuupplýsingar við geymum um þig, að leiðrétta rangar upplýsingar, að biðja um að við eyðum persónuupplýsingum þínum, og að andmæla eða takmarka vinnslu persónuupplýsinga þinna. Til að nýta þessi réttindi skaltu hafa samband við okkur á hjalp@bruks.is

 

Breytingar á persónuverndarstefnu

Við áskiljum okkur rétt til að breyta þessari persónuverndarstefnu ef þörf krefur. Breytingar taka gildi við birtingu á vefsíðu Brúks.is. Notendur eru hvattir til að skoða persónuverndarstefnuna reglulega til að vera upplýstir um breytingar.

 

Hafðu samband

Ef þú hefur einhverjar spurningar eða áhyggjur um þessa persónuverndarstefnu eða vinnslu persónuupplýsinga þinna, vinsamlegast hafðu samband við okkur á hjalp@bruks.is

Með því að nota Brúks.is samþykkir þú þessa persónuverndarstefnu.

Karfan mín
Scroll to Top