Margherita stólar hannaðir af Basaglia + Rota Nodari fyrir ítalska framleiðandann YDF.
Svart leður og burstað stál. Staflanlegir.
Stofa
Stíll
Hönnuður
Framleiðandi
Tímabil
Efni
Litur
Verð
-
LC4 Legubekkur
650.000 kr. Setja í körfuLC4 legubekkur – Cassina vintage (Le Corbusier, Jeanneret & Perriand)
Einstakt vintage eintak af LC4 legubekknum – einum frægasta hönnunargripi 20. aldar. Bekkurinn var hannaður árið 1928 af Le Corbusier, Pierre Jeanneret og Charlotte Perriand, og hefur verið framleiddur af Cassina síðan 1965 með vottaðri upprunamerkingu. Bekkurinn er í svörtu leðri með lakkaðri stálgrind og stillanlegu baki. Ástandið er mjög gott miðað við aldur – náttúruleg slit og patína sem gefa gripnum karakter án þess að skerða notagildi.
Framleiðandi: Cassina (merkt eintak)
Hönnuðir: Le Corbusier, Pierre Jeanneret, Charlotte Perriand
Hönnunarár: 1928
Framleiðsla: Italy, Cassina (vintage)
Efni: Svart leður og svartlökkuð stálgrind
Ástand: Góðu vintage ástandi – smávægileg eðlileg slit -
Cidonio – Antonia Astori
290.000 kr.Original price was: 290.000 kr..250.000 kr.Current price is: 250.000 kr.. Setja í körfuCidonio borð hannað af Antonia Astori fyrir Cidue. ca 1960
Krómaður stór botn og mjög þykk glerplata.
-
Krómaður barstóll með svörtu leðursæti
24.000 kr.Original price was: 24.000 kr..15.000 kr.Current price is: 15.000 kr.. Setja í körfuBarstóll úr krómuðu stáli með svörtu sæti. Tímalaus hönnun sem nýtur sín vel við barborð eða eldhúsborð
-
Saltimbanco – Raul Barbieri & Giorgio Marianelli fyrir Rexite
110.000 kr.Original price was: 110.000 kr..55.000 kr.Current price is: 55.000 kr.. Setja í körfuSaltimbanco hilluskrifborðið eftir Raul Barbieri og Giorgio Marianelli fyrir Rexite er einstaklega skemmtileg og fjölhæf Ítölsk hönnun – samanbrjótanleg eining sem nýtist bæði sem bókahilla og skrifborð og má staðsetja frístandandi eða upp við vegg. Þessi útgáfa með ljósgrárri málmgrind og beykiplötum var framleidd í kringum aldamótin og er ekki lengur í framleiðslu. Um er að ræða áhugaverðan grip sem sjaldan sést hérlendis.
-
Four Square Table – Ferruccio Laviani fyrir Kartell
150.000 kr.Original price was: 150.000 kr..75.000 kr.Current price is: 75.000 kr.. Setja í körfuFOUR-borðlínan eftir Ferruccio Laviani sameinar fágaða hönnun og notagildi á fullkominn hátt, með nákvæmri og geometrískri nálgun. Þunn borðplatan og ósamhverfar lappir gefa borðunum sérstöðu þar sem einfaldleiki og frumleiki mætast. 8 manna borð.
-
Vintage stólapar – lágir (2 saman)
70.000 kr.Original price was: 70.000 kr..45.000 kr.Current price is: 45.000 kr.. Setja í körfuGlæsilegir mjög lágir lounge stólar, (sætishæð 32 cm) líklega framleiddir árin 1965–1975. Hvítt háglans sæti og botn úr þungum, kringlóttum málmfæti sem gefur stólunum trausta stöðu og gott jafnvægi. Stílhreinir og áberandi stólar sem vekja athygli í hvaða rými sem er. Annar stóllinn sýnir aldurstengd ummerki við bakbrún. Myndir sýna nánar.
Sætishæð 32 cm
Seljast tveir saman
-
Boogie Woogie hillur – Stefano Giovannoni
30.000 kr.Original price was: 30.000 kr..15.000 kr.Current price is: 15.000 kr.. Setja í körfuHannaðar af Stefano Giovannoni fyrir Magis á Ítalíu.
Stefano er ítalskur iðnhönnuður og arkitekt, þekktur fyrir leikandi og framsækna nálgun á nytjahlutum. Hann hefur hannað fyrir fjölda þekktra ítalskra framleiðenda eins og Alessi, Magis og Kartell. Verk hans sameina oft mjúkar línur, líflega liti og einstakan karakter, með skýra vísun í poppmenningu og hversdagslegt notagildi.
Boogie Woogie hillurnar endurspegla þessa nálgun — með bylgjulöguðu formi, háglans áferð og sveigjanleika sem gerir þær jafnframt að hagnýtum og sjónrænt sterkum hönnunarhlutum.
Sjaldgæfar, staflanlegar hillueiningar úr glansandi ABS-plasti. Hver kubbur er sjálfstæður og hægt að raða þeim saman eftir þörfum. Innri hæð hvers kubbs er u.þ.b. 33 cm, sem hentar vel undir bækur eða skrautmuni.
Heildarstærð þriggja eininga er ca. 156 cm á hæð.
-
“Model 9230” – Henning Larssen, FH
90.000 kr. Setja í körfuFH Model 9230 – Henning Larsen fyrir Fritz Hansen (1967)
Skúlptúral stóll hannaður árið 1967 af danska arkitektinum og húsgagnahönnuðinum Henning Larsen fyrir Fritz Hansen í Danmörku.
Model 9230 var upphaflega hannaður fyrir hið þekkta Kar kaffihús í Kaupmannahöfn, og er óvenjuleg blanda af einfaldleika og grafísku formi. Grindin er úr stálrörum og einkennist af skrautlegu formi í bakinu sem gefur stólnum skúlptúrlíkt útlit – einstakur hönnunargripur frá gullöld danskra húsgagna.Þetta tiltekna eintak er merkt frá árinu 1985, og er í góðu vintage ástandi með fallegri patínu. Sjaldséður stóll á íslenskum markaði og eftirsóttur meðal safnara og hönnunarunnenda.
-
Y61 kollur – Alvar Aalto
95.000 kr. Setja í körfuSjaldgæfur Model Y61 kollur eftir finnska hönnuðinn Alvar Aalto, með svörtu sæti og sveigðum beykifótum. Kollurinn framleiddur á bilinu 1960–1980, í góðu vintage ástandi með slitsterku sæti og fallegri náttúrulegri patínu í viðnum. Hentar jafnt sem aukasæti, hliðarborð eða safngripur – tímalaus hönnun með karakter.
Sjaldgæf útgáfa sem er ekki lengur í framleiðslu. Tækifæri til að eignast ekta Aalto koll með handofnu sæti.
-
Zeppelin – FLOS
300.000 kr.Original price was: 300.000 kr..210.000 kr.Current price is: 210.000 kr.. Setja í körfuHönnuður: Marcel Wanders Studio (2005)
Töfrandi hengiljós þar sem hefðbundin ljósakróna er endursköpuð á nýstárlegan hátt. Innri stálgrindin er úðuð með hálfgegnsæju „cocoon“ efni sem skapar mjúka, dreifða lýsingu. Gagnsæ PMMA „kerti“ og fínlega slípuð kristalkúla neðst í miðju ljósi gefa því sérstakan glampa og dýpt. -
Mirror Ball 25 cm – Tom Dixon
45.000 kr.Original price was: 45.000 kr..31.500 kr.Current price is: 31.500 kr.. Setja í körfuMirror Ball Pendant 25 cm – Tom Dixon
-
Mirror Ball 50 cm – Tom Dixon
75.000 kr.Original price was: 75.000 kr..52.500 kr.Current price is: 52.500 kr.. Setja í körfuMirror Ball Pendant 50 cm – Tom Dixon
-
Lampi – Ateljè Lyktan
80.000 kr. Setja í körfuBorðlampi framleiddur af Ateljè Lyktan og hannaður af Anna Ehrner árið 1972.
Hæð: 66 cm
Þvermál á skermi: 53 cm
Þvermál á botni: 29 cm
-
Veggljós hvítt
18.000 kr.Original price was: 18.000 kr..15.000 kr.Current price is: 15.000 kr.. Setja í körfuFallegt hvítt veggljós úr málmi. 2 stk til.
-
Keramik Skál – Steinunn Marteinsdóttir
15.000 kr. Setja í körfuGlæsileg 42 cm keramik skál eftir Steinunni Marteinsdóttur.
-
Antík borð
21.000 kr.Original price was: 21.000 kr..10.000 kr.Current price is: 10.000 kr.. Setja í körfuGullfallegt antík sófa- eða hliðarborð með skúffu.
-
Needle Table – Ligne Roset
24.000 kr.Original price was: 24.000 kr..10.000 kr.Current price is: 10.000 kr.. Setja í körfu -
Veggljós
14.000 kr.Original price was: 14.000 kr..10.000 kr.Current price is: 10.000 kr.. Setja í körfuFallegt veggljós – messing og gler.
ALLRA NÝJASTA
-
Club chair
62.000 kr. Setja í körfuVeglegur svartur club chair úr þykku svörtu nautsleðri á krómfæti.
-
Furustólar (par)
32.000 kr. Setja í körfuGrófir, massífir furustólar sem minna á skandinavíska furuhönnun frá síðari hluta 20. aldar. Einfaldir og sterkbyggðir með fallegri áferð í viðnum. Seljast sem par
-
Benjamin – Lisa Norinder, IKEA
22.000 kr. Setja í körfuBenjamin stóllinn var hannaður af Lisa Norinder fyrir IKEA. Hann er úr beygðum krossvið og má stafla. Á síðari árum hefur hann orðið að eftirsóttum hönnunarhlut. Fallegur bæði sem stóll, hliðarborð eða stakur hlutur í rými.
-
Tree – Mario Mazzer, Bonaldo
42.000 kr. Setja í körfuGrænn fatastandur hannaður af Mario Mazzer fyrir ítalska framleiðandann Bonaldo árið 2006. Framleiddur úr mótuðu pólýetýleni og hægt að nota bæði inni og úti.































