Svefnherbergi
Við hjá Brúks.is bjóðum upp á fjölbreytt úrval af húsgögnum og hlutum fyrir svefnherbergið sem gera það að friðsælum og stílhreinum griðastað. Veldu úr klassískum eða nútímalegum rúmum og rúmgrindum sem tryggja þér góðan nætursvefn. Við bjóðum einnig upp á náttborð, kommóður og fataskápa sem sameina notagildi og fallega hönnun, svo svefnherbergið þitt sé bæði skipulagt og þægilegt. Til að skapa rétta andrúmsloftið er úrval af ljósum og lömpum sem bæta við hlýju og stemningu í svefnherberginu. Skreytingarhlutir eins og speglar, rúmteppi, skrautpúðar og veggskreytingar fullkomna útlitið og gera svefnherbergið að þínum persónulega griðastað. Finndu allt sem þú þarft hjá okkur til að gera svefnherbergið fallegt og afslappandi.
Sýna 1–24 af 26 niðurstöðurSorted by latest
-
Boogie Woogie hillur – Stefano Giovannoni
60.000 kr.Hannaðar af Stefano Giovannoni fyrir Magis á Ítalíu.
Stefano er ítalskur iðnhönnuður og arkitekt, þekktur fyrir leikandi og framsækna nálgun á nytjahlutum. Hann hefur hannað fyrir fjölda þekktra ítalskra framleiðenda eins og Alessi, Magis og Kartell. Verk hans sameina oft mjúkar línur, líflega liti og einstakan karakter, með skýra vísun í poppmenningu og hversdagslegt notagildi.
Boogie Woogie hillurnar endurspegla þessa nálgun — með bylgjulöguðu formi, háglans áferð og sveigjanleika sem gerir þær jafnframt að hagnýtum og sjónrænt sterkum hönnunarhlutum.
Sjaldgæfar, staflanlegar hillueiningar úr glansandi ABS-plasti. Hver kubbur er sjálfstæður og hægt að raða þeim saman eftir þörfum. Innri hæð hvers kubbs er u.þ.b. 33 cm, sem hentar vel undir bækur eða skrautmuni.
Heildarstærð þriggja eininga er ca. 156 cm á hæð.
-
Robin vegghilla
24.000 kr.Vegghilla úr Robin línunni sem IKEA kynnti árið 1997. Hönnuð af Hagberg-systkinunum og framleidd úr filmuðu spónaplötuefni með birkikanti. Hillan er stílhrein, létt í útliti og hengd beint á vegg með falinni festingu. Tilvalin undir bækur, skrautmuni eða miðla. Nú eftirsótt safngripur sem fangar anda skandinavískrar hönnunar á níunda áratugnum.
Örlítil sprunga undir einni hillunni sjá mynd.
-
Y61 kollur – Alvar Aalto
95.000 kr.Sjaldgæfur Model Y61 kollur eftir finnska hönnuðinn Alvar Aalto, með svörtu sæti og sveigðum beykifótum. Kollurinn framleiddur á bilinu 1960–1980, í góðu vintage ástandi með slitsterku sæti og fallegri náttúrulegri patínu í viðnum. Hentar jafnt sem aukasæti, hliðarborð eða safngripur – tímalaus hönnun með karakter.
Sjaldgæf útgáfa sem er ekki lengur í framleiðslu. Tækifæri til að eignast ekta Aalto koll með handofnu sæti.
-
Bogen – Tord Björklund
15.000 kr.Samfellanlegt borð eftir Tord Björklund fyrir IKEA 1986.
Borðplata aðeins rispuð.
-
Hatten – Ehlén Johansson
9.000 kr. -
Amber loftljós
16.000 kr. -
Klappstólar
18.000 kr. -
Járnstóll
24.000 kr. -
Needle Table – Ligne Roset
24.000 kr. -
Halogen Gólflampi
32.000 kr.Fallegur dimmanlegur halogen gólflampi frá 1980, framleiðandi óþekktur. Póstmódernísk hönnun sem er dæmigerð fyrir 9. áratuginn. Svart lakkaður málmur með glerskermi. Lampinn er í mjög góðu vintage ástandi.
ALLRA NÝJASTA
-
Borð og stólar frá Tord Björklund
30.000 kr.Eldhúsborð og 4 stólar.
Stólar hannaðir af Tord Bjorklund
Frá Ikea 1992
Vel með farið, en léttar yfirborðsrispur öðru megin.
-
Sófi 2212 – Børge Mogensen
330.000 kr.Rauður sófi, 2 sæta. Hágæða danskur leðursófi. Børge Mogensen, tveggja sæta. Kostar nýr 1.600.000 en fæst á 330.000
Nánari upplýsingar um verð og stærð og leður
https://www.pamono.co.uk/reddish-brown-leather-on-legs-in-oak-2-seater-sofa-model-no-2212-by-borge-mogensen-for-fredericia-furniture-denmark-1980s -
6 Desertskálar
9.000 kr. -
Amber vasi
7.500 kr. -
Fjólublár vasi
6.500 kr. -
Buster – Tommy M 4ra sæta
450.000 kr.Einstaklega fallegur sófi hannaður af Tommy M. Sófinn er 241 x 93 cm, í villtu annelín leðri sem er handvalið og unnið. Var keyptur í Heimahúsinu árið 2019. Mjög vel farinn, nánast eins og nýr.
-
Siesta chair – Ingmar Relling (Westnofa furniture)
120.000 kr.Glæsilegur stóll frá hönnuðinum Ingmar Relling, stóllinn er frá því kringum 1970 og er vel með farinn. Stóllinn var nýlega teginn í gegn af dr.leður og er leðrið 100% standi. Þetta er sjaldséður stóll á Íslandi, Vest.is er að selja þessa stóla í dag og kostar armstóllinn með leðri tæpar 500.000 kr. og óska ég eftir tilboði í stólinn. Er að selja hann vegna breytinga. Er til í að láta hann á 120.000 vegna breytinga.