Sæti

Vörusíur

  • Sófi 2212 – Børge Mogensen

    330.000 kr.

    Rauður sófi, 2 sæta. Hágæða danskur leðursófi. Børge Mogensen, tveggja sæta. Kostar nýr 1.600.000 en fæst á 330.000
    Nánari upplýsingar um verð og stærð og leður
    https://www.pamono.co.uk/reddish-brown-leather-on-legs-in-oak-2-seater-sofa-model-no-2212-by-borge-mogensen-for-fredericia-furniture-denmark-1980s

  • Ruggustóll með Salún áklæði

    88.000 kr.

    Glæsilegur ruggustóll með fallegu Salún vönduðu ullaráklæði.

  • Buster – Tommy M 4ra sæta

    450.000 kr.

    Einstaklega fallegur sófi hannaður af Tommy M. Sófinn er 241 x 93 cm, í villtu annelín leðri sem er handvalið og unnið. Var keyptur í Heimahúsinu árið 2019. Mjög vel farinn, nánast eins og nýr.

  • Siesta chair – Ingmar Relling (Westnofa furniture)

    120.000 kr.

    Glæsilegur stóll frá hönnuðinum Ingmar Relling, stóllinn er frá því kringum 1970 og er vel með farinn. Stóllinn var nýlega teginn í gegn af dr.leður og er leðrið 100% standi. Þetta er sjaldséður stóll á Íslandi, Vest.is er að selja þessa stóla í dag og kostar armstóllinn með leðri tæpar 500.000 kr. og óska ég eftir tilboði í stólinn. Er að selja hann vegna breytinga. Er til í að láta hann á 120.000 vegna breytinga.

  • Svartur leðursófi

    160.000 kr.

    Fallegur leðursófi úr Halland línunni frá IKEA, framleidd á snemma tíunda áratugnum. Sófinn er klæddur með þykku buffalo-leðri sem hefur fengið fallega náttúrulega patínu með aldrinum. Patchwork bakhlið. Djúpt sæti og lágt bak – fullkomið í afslappað rými. Sætishæð 42 cm.

  • 1,5 Hægindastóll

    105.000 kr.

    Dökkbrúnn ítalskur hægindastóll úr fallegu þykku leðri.

  • About a Lounge – HAY

    150.000 kr.

    About A Lounge Chair er fullkomið jafnvægi milli opinleika og næði. Stóllinn einkennist af mjúkum, lífrænum línum og þægilegu, umvefjandi formi sem skapa hlýlegt yfirbragð í hvaða rými sem er.

  • Fléttaður stóll

    32.000 kr.
  • Tirup hægindastóll

    72.000 kr.

    Tirup er þægilegur og stílhreinn hægindastóll sem var framleiddur af IKEA. Hann sameinar einfaldleika og notagildi með nútímalegri hönnun og hefur verið vinsæll bæði á heimilum og vinnustöðum. Stóllinn er með ávalar línur og mjúkar sveigjur sem veita góðan stuðning við bak og axlir. Hann stendur á snúningsfæti sem auðveldar hreyfanleika og gerir hann hentugu vali í stofur, skrifstofur og setustofur. 

  • LC4 Legubekkur

    650.000 kr.

    LC4 legubekkur – Cassina vintage (Le Corbusier, Jeanneret & Perriand)

    Einstakt vintage eintak af LC4 legubekknum – einum frægasta hönnunargripi 20. aldar. Bekkurinn var hannaður árið 1928 af Le Corbusier, Pierre Jeanneret og Charlotte Perriand, og hefur verið framleiddur af Cassina síðan 1965 með vottaðri upprunamerkingu. Bekkurinn er í svörtu leðri með lakkaðri stálgrind og stillanlegu baki. Ástandið er mjög gott miðað við aldur – náttúruleg slit og patína sem gefa gripnum karakter án þess að skerða notagildi.
    Framleiðandi: Cassina (merkt eintak)
    Hönnuðir: Le Corbusier, Pierre Jeanneret, Charlotte Perriand
    Hönnunarár: 1928
    Framleiðsla: Italy, Cassina (vintage)
    Efni: Svart leður og svartlökkuð stálgrind
    Ástand: Góðu vintage ástandi – smávægileg eðlileg slit

  • 406 – Alvar Aalto

    210.000 kr.

    Alvar Aalto hannaði hægindastól 406 árið 1939.

  • 406 – Alvar Aalto

    180.000 kr.

    Alvar Aalto hannaði hægindastól 406 árið 1939.

  • “Model 9230” – Henning Larssen, FH

    90.000 kr.

    FH Model 9230 – Henning Larsen fyrir Fritz Hansen (1967)

    Skúlptúral stóll hannaður árið 1967 af danska arkitektinum og húsgagnahönnuðinum Henning Larsen fyrir Fritz Hansen í Danmörku.
    Model 9230 var upphaflega hannaður fyrir hið þekkta Kar kaffihús í Kaupmannahöfn, og er óvenjuleg blanda af einfaldleika og grafísku formi. Grindin er úr stálrörum og einkennist af skrautlegu formi í bakinu sem gefur stólnum skúlptúrlíkt útlit – einstakur hönnunargripur frá gullöld danskra húsgagna.

    Þetta tiltekna eintak er merkt frá árinu 1985, og er í góðu vintage ástandi með fallegri patínu. Sjaldséður stóll á íslenskum markaði og eftirsóttur meðal safnara og hönnunarunnenda.

  • Y61 kollur – Alvar Aalto

    95.000 kr.

    Sjaldgæfur Model Y61 kollur eftir finnska hönnuðinn Alvar Aalto, með svörtu sæti og sveigðum beyki­fótum. Kollurinn framleiddur á bilinu 1960–1980, í góðu vintage ástandi með slitsterku sæti og fallegri náttúrulegri patínu í viðnum. Hentar jafnt sem aukasæti, hliðarborð eða safngripur – tímalaus hönnun með karakter.

    Sjaldgæf útgáfa sem er ekki lengur í framleiðslu. Tækifæri til að eignast ekta Aalto koll með handofnu sæti.

  • “Linus” stólar

    25.000 kr.

    Í anda Carlo Graffi & Franco Campo

  • JG sófi – Jørgen Gammelgaard

    240.000 kr.

    Tveggja sæta sófi eftir Jørgen Gammelgaard um 1980 fyrir Erik Jørgensen – Fredericia.

    Sætishæð 38 cm

     

  • Sinbad hægindastólar (2) – Vico Magistretti

    50.000 kr.

    Tveir hægindastólar úr leðri eftir Vico Magistretti. Einstaklega falleg hönnun sem fæst fyrir lítið.

  • Háir barstólar frá Ligne Roset

    15.000 kr.

    Tveir háir vel með farnir barstólar til sölu fra Ligne Roset. Voru keyptir í Casa. Stólarnir eru 80 cm upp að setu. Setan er úr grábláu leðri.

  • Hægindastóll & skemill

    260.000 kr.

    Hægindastóll með höfuðpúða og skemill. Svart leður og burstuð stálgrind.

ALLRA NÝJASTA

Karfan mín
Scroll to Top