Sæti
Sýna 106–126 af 157 niðurstöðurSorted by latest
-
Thonet stólar
Upprunalegir merktir stólar frá Thonet, líklega smíðaðir á millistríðsárunum, um 1920–1930.
Þessir klassísku formbeygðu stólar eru vandað handverk og endurspegla þá hugmyndafræði sem gerði Thonet að einni áhrifamestu húsgagnaverksmiðju sögunnar: einfaldleika í formi, nákvæmni í smíði og gæði sem standast tímans tönn. Bakið er úr heilum, örlítið sveigðum við, sem gefur stólnum sterk og stílhrein form með mjúkum línum og léttu yfirbragði. Þeir eru jafnt hagnýtir sem þeir eru fallegir – stólar sem falla að margvíslegum rýmum þar sem gæði og hönnun fá að njóta sín. -
Hægindastóll & skemill
Hægindastóll með höfuðpúða og skemill. Svart leður og burstuð stálgrind.
-
Sófi 2212 – Børge Mogensen
Rauður sófi, 2 sæta. Hágæða danskur leðursófi. Børge Mogensen, tveggja sæta. Kostar nýr 1.600.000 en fæst á 330.000
Nánari upplýsingar um verð og stærð og leður
https://www.pamono.co.uk/reddish-brown-leather-on-legs-in-oak-2-seater-sofa-model-no-2212-by-borge-mogensen-for-fredericia-furniture-denmark-1980s -
Siesta chair – Ingmar Relling (Westnofa furniture)
Glæsilegur stóll frá hönnuðinum Ingmar Relling, stóllinn er frá því kringum 1970 og er vel með farinn. Stóllinn var nýlega teginn í gegn af dr.leður og er leðrið 100% standi. Þetta er sjaldséður stóll á Íslandi, Vest.is er að selja þessa stóla í dag og kostar armstóllinn með leðri tæpar 500.000 kr. og óska ég eftir tilboði í stólinn. Er að selja hann vegna breytinga. Er til í að láta hann á 120.000 vegna breytinga.
-
Svartur leðursófi
Sófinn er úr þykku buffalo-leðri sem hefur veðrast einstaklega fallega með aldrinum. Djúpt sæti og lágt bak – fullkomið í afslappað rými. Sætishæð 42 cm.
-
Bekkur 153A – Alvar Aalto
Klassískur bekkur eftir Alvar Aalto, hannaður árið 1945 fyrir Artek. Þessi útgáfa er með rimlayfirborði í náttúrulegum beyki og sveigðum fótum sem einkenna hönnun Aalto. Hrein form, hlý efni og tímalaus fagurfræði sem nýtur sín jafnt í forstofum, gangi, undir glugga eða í vinnurýmum.
Bekkurinn er í góðu ástandi með fallegri patínu.
-
Patchwork leðursvefnsófi
Veglegur svartur “patchwork” svefnsófi úr sterku leðri. Bakið er fellt niður með einföldum hætti til að breyta sófanum í rúm, og undir sitjandi fleti leynist rúmgott geymsluhólf.
B205 x D77 x H82 cm
sætisdýpt 61 cm
Opinn 122 cm
ALLRA NÝJASTA
-
Opus barstólar (2 saman) – Pelikan Design
40.000 kr. -
Juicy Salif – Philippe Starck, Alessi
11.500 kr. -
Gler og krómborð
72.000 kr. -
Króm loftljós
25.000 kr. -
Strips/Lakene – Brylle & Jacobsen
44.000 kr.Strips ljósið var hannað af Flemming Brylle og Preben Jacobsen
-
Blaðagrind
18.000 kr. -
Fléttaður stóll
48.000 kr. -
70’s sófasett
370.000 kr.Einstaklega vel varðveitt sófasett frá áttunda áratug síðustu aldar, klætt upprunalegu velúr áklæði í hlýjum jarðlitum. Settið samanstendur af tveggja sæta sófa og hægindastól og selst saman. Ástand er mjög gott. Engin sjáanleg slit, rifur eða aflögun eru til staðar og áklæðið er jafnt og hreint. Heildaryfirbragð settsins ber með sér vandaða notkun og góða umhirðu.
-
Bistro stólasett (4 saman)
100.000 kr.Gullfallegir gamlir bistro stólar með brúnu ullaráklæði. Seljast 4 saman.









