Lýsing
Stíll
Hönnuður
Framleiðandi
Tímabil
Efni
Litur
Verð
-
Storm pappírslampi 68cm
22.000 kr. Setja í körfuVintage STORM standlampi frá IKEA með handgerðum pappírsskermi á málmgrind. Óregluleg áferð pappírsins og mjúkt, lífrænt form gefa lampanum hlýtt og dreift ljós.
68 cm hár
-
Ball – Benny Frandsen (Par)
32.000 kr. Setja í körfuPar af klassískum Ball-hengiljósum í krómi eftir danska hönnuðinn Benny Frandsen. Spegilslétt yfirborðið og einfalt kúluformið gefa ljósunum tímalaust, skandinavískt yfirbragð. Í góðu vintage ástandi. Ljósin eru með hvítri snúru ólíkt myndinni.
-
Kaskad borðlampi
25.000 kr. Setja í körfuVintage KASKAD borðlampi frá IKEA með bogadregnum krómfæti og stillanlegum skermi úr munnblásnu gleri. Skúlptúrískt form og óregluleg áferð glersins gefa lampanum mjúkt og hlýlegt ljós.
-
Space age loftljós
86.000 kr. Setja í körfuStórt og einstaklega formfagurt vintage-hengiljós með reyklituðum akrýlskermi, ljósum innri dreifara og glansandi krómhlutum. Uppdraganlegur búnaður gerir kleift að stilla hæð ljóssins. Áberandi og hlýlegt stemningsljós í klassískum Space Age-stíl.
Tímabil: 1970–1979
Efni: Akrýl og krómaður málmur -
PS lampi hvítur – Ola Wihlborg
17.000 kr. Setja í körfuSkúlptúrískur borðlampi úr IKEA PS 2017 línunni, hannaður af Ola Wihlborg. Hægt er að nota lampann á vegg, gólfi eða á borð.
-
Le Klint 172 – Poul Christiansen
28.000 kr. Setja í körfuKlassísk dönsk hengiljós með handbrotnum, hvítum plastskermi. Sveigðar fellingarnar mynda mjúkt, skúlptúrkennt form og gefa fallega, dreifða lýsingu. 33 cm þvermál
-
SCE France gólflampi
67.000 kr. Setja í körfuHáreistur vintage-standlampi frá franska lýsingarframleiðandanum SCE France. 1980’s
Krómuð málmgrind með stórum skálarskermi sem varpar mjúku ljósi upp á vegg og loft. Dimmer gerir þér kleift að stilla birtuna og skapa mismunandi stemningu.
-
Brutto standlampi – Abo Randers/Ikea
15.000 kr. Setja í körfuMinimalískur vintage BRUTTO standlampi frá IKEA, framleiddur af danska lýsingarframleiðandanum Abo Randers. Svartlökkuð málmgrind með þungum, kringlóttum fæti og stillanlegum skermi sem hægt er að beina eftir þörfum. Hreint og grafískt form með sterkum skandinavískum 1980s-einkennum. Lampinn er heill og virkar vel. Aldurstengt yfirborðsslit og patína, einkum á fæti.
-
Termosfär kastarabraut – Carl Öjerstam
29.000 kr. Setja í körfuStílhreint lágspennukerfi með fimm stillanlegum krómuðum kösturum á vírum. Létt og iðnaðarlegt yfirbragð sem hentar sérstaklega vel yfir eldhús, langborð eða í opið rými. Er í óopnuðum umbúðum.
-
Luta borðlampi
11.000 kr. Setja í körfuNettur vintage borðlampi með rifflaðri viðarsúlu, dökkri stálundirstöðu og hvítum pappaskermi. Hlýlegt og látlaust form sem fangar vel skandinavíska hönnun tíunda áratugarins.
-
Vintage Murano-veggljós Par
86.000 kr. Setja í körfuPar af ítölskum vintage veggljósum í brutalískum stíl frá sjöunda eða áttunda áratugnum. Skúlptúrísk umgjörð úr handunnum málmi rammar inn þykka, áferðarmikla Murano-glerfleka sem dreifa birtunni fallega.
-
Art Deco veggljós
18.000 kr. Setja í körfuVeggljós í Art Deco stíll. Ljósin eru í þríhyrningsformi – mattpressað gler og þríhyrningslaga stoð úr brassi. E14 ljósaperur.
-
Kumulus – Peter Nilsson
580.000 kr. Setja í körfuKumulus 95 eftir Peter Nilsson er einstök ljósakróna, samsett úr 42 handblásnum glerhlutum sem eru mótaðir fríhendis. Hver ljósakróna er einstök. Glerið er unnið í Bergdalahyttan í Småland í Svíþjóð, þar sem rík handverkshefð liggur að baki framleiðslunni. Þetta er ljós sem gegnir ekki aðeins hlutverki lýsingar heldur setur einnig sterkan svip á hvaða rými sem er.
Ljósið er mjög vel með farið en örlítið brot er á einu blómi. Sjá mynd.
-
Caravaggio P2 – Cecilie Manz, Fritz Hansen
36.000 kr.Original price was: 36.000 kr..18.000 kr.Current price is: 18.000 kr.. Setja í körfuCaravaggio loftljós eftir Cecilie Manz fyrir Fritz Hansen. Hvítt lakkað
Pínulitlar yfirborðsrispur á skermi,
-
Stór lampi – Manuel Benlloch
52.000 kr. Setja í körfuGlæsilegur stór lampi eftir spænska keramiklistamanninn Manuel Benlloch.
-
iGuzzini veggljós 53 cm
42.000 kr. Setja í körfuStórt ítalskt ljós með kúptum diffuser úr opal-lituðu plastefni og málmbotni frá iGuzzini. Látlaus hönnun síðari hluta 20. aldar. Þvermál ca. 53 cm.
-
TR5 – Tom Rossau
45.000 kr.Original price was: 45.000 kr..35.000 kr.Current price is: 35.000 kr.. Setja í körfu -
Fjaðraljós 60 cm
24.000 kr.Original price was: 24.000 kr..12.000 kr.Current price is: 12.000 kr.. Setja í körfuStórt og mikið hvítt fjaðraljós – rúmlega 60 cm
ALLRA NÝJASTA
-
Grétar Reynisson (1957) Málverk
110.000 kr. Setja í körfuMálverk eftir Grétar Reynisson myndlistarmann og Leikmyndahönnuð
Ártal: 1986
Án titils
Efni: Olía á striga
Stærð: 30 x 40 cm. -
Þórdís Alda Sigurðardóttir (1950) Ljósmynd
27.000 kr. Setja í körfuÞórdís Alda Sigurðardóttir – Ljósmynd á striga
Titill: Þvottadagur
Stærð: 45 x 25 cm.
“Þórdís Alda Sigurðardóttir (f. 1950 í Reykjavík) er myndlistarkona sem býr og starfar í Mosfellsbæ og Skagafirði. Hún nam við Kennaraháskóla Íslands, Myndlistarskóla Reykjavíkur, Mynd- og handíðaskóla Íslands og Akademie der Bildenden Künste í München, Þýskalandi. Þórdís hefur verið virkur þátttakandi í myndlistarlífi Íslands í áratugi og tekið þátt í fjölda sýninga hérlendis og erlendis.” -
Guðrún Öyahals (1964) Málverk
190.000 kr. Setja í körfuMálverk eftir Guðrúnu Öyahals myndlistarmann og leikmyndahönnuð.
Án titils
Ártal: 1997
Efni: Olía á striga
Stærð: 60 x 100 cm.
Vefsíða: https://www.stugo.art/ -
Sigurður Örlygsson (1946-2019) Vatnslitaverk
140.000 kr. Setja í körfuSigurður Örlygsson – Málverk
Titill: Trompetleikarinn (verkið er hluti af seríu verka af tónlistamönnum)
Efni: Vatnslitur
Stærð Myndar: 36 x 27 – Stærð ramma 57 x 33 cm.
“Sigurður Örlygsson fæddist í Hafrafelli í Laugardalnum í Reykjavík, 28. júlí 1946. Hann stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands árin 1967-71, Det Kongelige Danske Kunstakademi hjá prófessor Richard Mortensen 1971-72 og síðar við Art Students League of New York 1974-75. Þá kenndi hann við Myndlista- og handíðaskólann lengi og síðar Listaháskóla Íslands og Myndlistarskólann í Reykjavík. Sigurður hélt fjölda einkasýninga og samsýninga meðan hann starfaði, jafnt innanlands og utan. Hann hlaut Menningarverðlaun DV árið 1989 og af og til úhlutun frá starfslaunum listamanna.” -
Þórður Hall – Silkiþrykk
95.000 kr. Setja í körfuSilkiþrykk eftir Þórð Hall. (1949)
Titill: Í gróandanum I – E/Þ
Ártal: 1981
Stærð myndar: 50 x 45 – Stærð með ramma 73 x 6″
Þórður Hall has always used nature as his subject, and in his screen prints made between 1979 and 1987, that subject was the geometry of the Icelandic landscape—conical mountains, waterfalls, and glaciers simplified into basic forms and colors.”Nú stendur yfir sýning á verkum hans í Gallerí I8
-
Vintage mid century skrautflaska frá Englandi
6.000 kr. Setja í körfuFalleg vintage skrautflaska úr kopar og látúni, framleidd á Englandi. Flaskan er handhamruð og skreytt með klassísku fleur-de-lis liljutákni úr látúni að framan. Með leðuról og tappa með keðju.
Hlutur með mikinn karakter og fallega patínu sem hentar vel sem skrautmunur, til dæmis á vegg eða í vintage/retro uppstillingu. Breskur repro-hlutur í eldri stíl.
Efni: Kopar, látún og leður
Uppruni: England
Stíll: Vintage / rustic / traditional English
Notkun: Skrautflaska / veggskraut / safngripur
-
Bloomingville Osca shelf vegghilla
8.500 kr. Setja í körfuVeggfest grind úr málmi með þremur færanlegum hillum og tveimur krókum. Hentar vel undir smáhluti, snyrtivörur eða skraut. Hægt að raða upp á mismunandi vegu.
Kostaði 17500 kr
-
Vintage gólf kertastjaki 6 kerti
6.000 kr. Setja í körfuFallegur grænn gólfkertastjaki. Tekur 6 sprittkerti eða löng kerti í breiðari kantinum. Járn.
-
Vintage bólstraðir stólar 2stk
35.000 kr. Setja í körfuStólarnir eru bólstraðir bæði í setu og baki og nú klæddir svörtu áklæði með skrautnöglum í antikgylltum/látúnslit. Undir svarta áklæðinu er eldra, mynstrað áklæði enn varðveitt – sjá á myndum. Fæturnir eru úr gegnheilli eik.
Falleg blanda af klassískri danskri/europeískri húsgagnagerð og hráum vintage karakter. Stólarnir eru flottir saman en gætu einnig notið sín sem stakir statement-stólar.Uppruni og aldur er óþekkt en stólarnir eru líklegast frá Danmörku og amk 50 ára gamlir ef ekki meir.
-
Áslaug Sigvaldadóttir – Málverk
45.000 kr. Setja í körfuÁslaug Sigvaldadóttir – Tvö samstæð málverk
Titill: Sæti við gluggann (Kona / Karl)
Efni: Olía á striga
Stærð: 35 x 35 cm. hvort verk.

































