Vörur
Stíll
Hönnuður
Framleiðandi
Tímabil
Efni
Litur
Verð
-
Sófaborð
33.000 kr. Setja í körfuFormfagurt vintage sófaborð með reyklitaðri glerplötu og bogadregnum viðargrunni.
-
Ball – Benny Frandsen (Par)
32.000 kr. Setja í körfuPar af klassískum Ball-hengiljósum í krómi eftir danska hönnuðinn Benny Frandsen. Spegilslétt yfirborðið og einfalt kúluformið gefa ljósunum tímalaust, skandinavískt yfirbragð. Í góðu vintage ástandi. Ljósin eru með hvítri snúru ólíkt myndinni.
-
Waterfall sófaborð – Calligaris
148.000 kr. Setja í körfuSkúlptúrískt ítalskt sófaborð frá Calligaris úr þykku, hitabeygðu gleri. Hvítmött áferðin, grænleitur glerkanturinn og mjúklega mótaðir fætur gefa borðinu létt en afgerandi yfirbragð. Sjaldséð og einstaklega fallegt statement-borð.
-
Vintage samfellanlegt fururvegghengi
12.000 kr. Setja í körfuFormfagurt vintage vegghengi úr furu með samfellanlegri skærahönnun. Hengið má draga út eða fella saman eftir rými og þörfum og renndir viðartappar nýtast fyrir yfirhafnir, töskur, húfur og aðra smáhluti.
-
Kaskad borðlampi
25.000 kr. Setja í körfuVintage KASKAD borðlampi frá IKEA með bogadregnum krómfæti og stillanlegum skermi úr munnblásnu gleri. Skúlptúrískt form og óregluleg áferð glersins gefa lampanum mjúkt og hlýlegt ljós.
-
Stiletto – Heico Linke, Zack
14.000 kr. Setja í körfuSkúlptúrísk Stiletto ávaxtaskál, hönnuð af Heico Linke fyrir þýska hönnunarmerkið ZACK. Mjóar stálstangir rísa upp frá hringlaga botni og mynda létt og grafískt form sem er einkennandi fyrir postmodern hönnun tíunda áratugarins.
-
Tokyo Chair – Rodney Kinsman, Bieffeplast (4 saman)
120.000 kr. Setja í körfuGlæsilegt sett af fjórum ítölskum Tokyo-stólum, hönnuðum af Rodney Kinsman fyrir Bieffeplast. Krómuð stálgrind og svört bólstruð seta gefa stólunum létt og grafískt yfirbragð. Gott vintage-ástand með eðlilegum notkunarmerkjum. Tvær sessur eru með litlum skrámum sem sjást á myndum. Verð er fyrir alla 4 saman.
-
Space age loftljós
86.000 kr. Setja í körfuStórt og einstaklega formfagurt vintage-hengiljós með reyklituðum akrýlskermi, ljósum innri dreifara og glansandi krómhlutum. Uppdraganlegur búnaður gerir kleift að stilla hæð ljóssins. Áberandi og hlýlegt stemningsljós í klassískum Space Age-stíl.
Tímabil: 1970–1979
Efni: Akrýl og krómaður málmur -
Vintage Stouby sófi
170.000 kr. Setja í körfuFallegur tveggja sæta vintage leðursófi frá danska framleiðandanum Stouby. Sófinn er klæddur koníakslituðu leðri með fallegri patínu og stendur á ljósum viðarfótum.
-
Viki hliðarborð – Bruni Brunati & Carlo Zerbaro fyrir Naos, 1988
80.000 kr. Setja í körfuPar af Viki hliðarborðum, hönnuðum af Bruni Brunati og Carlo Zerbaro fyrir ítalska framleiðandann Naos árið 1988.
Borðin einkennast af skúlptúrískri og leikandi formgerð með hringlaga glerplötum, sveigðum málmstoðum og þríhyrndum undirstöðum. Þau eru í tveimur stærðum og ólíkum litaútfærslum sem mynda fallega heild. Sterk og einkennandi ítölsk póstmódernísk hönnun frá níunda áratugnum.
Gott vintage-ástand með eðlilegum merkjum um aldur og notkun, meðal annars smávægilegu yfirborðssliti og rispum. Gler alveg heil. Sjá nánar á myndum.
-
Vintage króm blaðagrind
18.000 kr. Setja í körfuFormfögur vintage-blaðagrind úr krómuðum málmi. Bogadregin röragrind og skásettir málmstangir gefa henni létt og grafískt yfirbragð, einkennandi fyrir hönnun seint á 20. öld.
-
PS lampi hvítur – Ola Wihlborg
17.000 kr. Setja í körfuSkúlptúrískur borðlampi úr IKEA PS 2017 línunni, hannaður af Ola Wihlborg. Hægt er að nota lampann á vegg, gólfi eða á borð.
-
Le Klint 172 – Poul Christiansen
28.000 kr. Setja í körfuKlassísk dönsk hengiljós með handbrotnum, hvítum plastskermi. Sveigðar fellingarnar mynda mjúkt, skúlptúrkennt form og gefa fallega, dreifða lýsingu. 33 cm þvermál
-
SCE France gólflampi
67.000 kr. Setja í körfuHáreistur vintage-standlampi frá franska lýsingarframleiðandanum SCE France. 1980’s
Krómuð málmgrind með stórum skálarskermi sem varpar mjúku ljósi upp á vegg og loft. Dimmer gerir þér kleift að stilla birtuna og skapa mismunandi stemningu.
-
Tic & Tac – Philippe Starck & Eugeni Quitllet
12.000 kr. Setja í körfuTic & Tac veggklukka, hönnuð af Philippe Starck og Eugeni Quitllet fyrir Kartell. Gegnsæ framhlið með rómverskum tölum liggur yfir svörtum klukkufleti og gefur klukkunni einkennandi dýpt og speglun.
-
MGDT – Michael Graves, Alessi
30.000 kr. Setja í körfuEspresso-bollar eftir Michael Graves fyrir Alessi. Glerbollar í gljáandi stálumgjörð með ljósbláum höldum og rauðum smáatriðum sem einkenna leikandi póstmódernískan stíl hönnuðarins. Settið inniheldur sex bolla og sex samsvarandi undirskálar.
-
Skúlptúrísk stór kanna – Dümler & Breiden
22.000 kr. Setja í körfuSkúlptúrísk vintage-kanna frá þýska keramíkframleiðandanum Dümler & Breiden. Lífrænt form með áberandi relief-áferð og þykkri krem- og brúnleitri glerjun, einkennandi fyrir vestur-þýska keramík tímabilsins.
Framleiðandi: Dümler & Breiden
Uppruni: Vestur-Þýskaland
Tímabil: 1960s
Módel: 48/20
Efni: Glerjað keramík
Hæð: 20 cm -
Brutto standlampi – Abo Randers/Ikea
15.000 kr. Setja í körfuMinimalískur vintage BRUTTO standlampi frá IKEA, framleiddur af danska lýsingarframleiðandanum Abo Randers. Svartlökkuð málmgrind með þungum, kringlóttum fæti og stillanlegum skermi sem hægt er að beina eftir þörfum. Hreint og grafískt form með sterkum skandinavískum 1980s-einkennum. Lampinn er heill og virkar vel. Aldurstengt yfirborðsslit og patína, einkum á fæti.
-
Etage – Tomas Jelinek
31.000 kr. Setja í körfuVintage ETAGE rúlluborð, hannað af Tomas Jelinek fyrir IKEA á áttunda áratugnum. Borðið er með krómaðri stálgrind, tveimur eikarspónlögðum borðplötum og upprunalegum tímaritavasa úr líni. Hönnunin gerir kleift að renna borðinu yfir sófa eða rúm og hjólin gera það auðvelt að færa til.
-
“Linus” stólar (4 saman)
60.000 kr. Setja í körfuÍ anda Carlo Graffi & Franco Campo. Allir alveg heilir nema einn sem er með litlu sári í setunni. (Sjá mynd)
-
Furustólar (par)
30.000 kr. Setja í körfuGrófir, massífir furustólar frá síðari hluta 20. aldar. Einfaldir og sterkbyggðir með fallegri áferð í viðnum. Seljast sem par
ALLRA NÝJASTA
-
Grétar Reynisson (1957) Málverk
110.000 kr. Setja í körfuMálverk eftir Grétar Reynisson myndlistarmann og Leikmyndahönnuð
Ártal: 1986
Án titils
Efni: Olía á striga
Stærð: 30 x 40 cm. -
Þórdís Alda Sigurðardóttir (1950) Ljósmynd
27.000 kr. Setja í körfuÞórdís Alda Sigurðardóttir – Ljósmynd á striga
Titill: Þvottadagur
Stærð: 45 x 25 cm.
“Þórdís Alda Sigurðardóttir (f. 1950 í Reykjavík) er myndlistarkona sem býr og starfar í Mosfellsbæ og Skagafirði. Hún nam við Kennaraháskóla Íslands, Myndlistarskóla Reykjavíkur, Mynd- og handíðaskóla Íslands og Akademie der Bildenden Künste í München, Þýskalandi. Þórdís hefur verið virkur þátttakandi í myndlistarlífi Íslands í áratugi og tekið þátt í fjölda sýninga hérlendis og erlendis.” -
Guðrún Öyahals (1964) Málverk
190.000 kr. Setja í körfuMálverk eftir Guðrúnu Öyahals myndlistarmann og leikmyndahönnuð.
Án titils
Ártal: 1997
Efni: Olía á striga
Stærð: 60 x 100 cm.
Vefsíða: https://www.stugo.art/ -
Sigurður Örlygsson (1946-2019) Vatnslitaverk
140.000 kr. Setja í körfuSigurður Örlygsson – Málverk
Titill: Trompetleikarinn (verkið er hluti af seríu verka af tónlistamönnum)
Efni: Vatnslitur
Stærð Myndar: 36 x 27 – Stærð ramma 57 x 33 cm.
“Sigurður Örlygsson fæddist í Hafrafelli í Laugardalnum í Reykjavík, 28. júlí 1946. Hann stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands árin 1967-71, Det Kongelige Danske Kunstakademi hjá prófessor Richard Mortensen 1971-72 og síðar við Art Students League of New York 1974-75. Þá kenndi hann við Myndlista- og handíðaskólann lengi og síðar Listaháskóla Íslands og Myndlistarskólann í Reykjavík. Sigurður hélt fjölda einkasýninga og samsýninga meðan hann starfaði, jafnt innanlands og utan. Hann hlaut Menningarverðlaun DV árið 1989 og af og til úhlutun frá starfslaunum listamanna.” -
Þórður Hall – Silkiþrykk
95.000 kr. Setja í körfuSilkiþrykk eftir Þórð Hall. (1949)
Titill: Í gróandanum I – E/Þ
Ártal: 1981
Stærð myndar: 50 x 45 – Stærð með ramma 73 x 6″
Þórður Hall has always used nature as his subject, and in his screen prints made between 1979 and 1987, that subject was the geometry of the Icelandic landscape—conical mountains, waterfalls, and glaciers simplified into basic forms and colors.”Nú stendur yfir sýning á verkum hans í Gallerí I8
-
Vintage mid century skrautflaska frá Englandi
6.000 kr. Setja í körfuFalleg vintage skrautflaska úr kopar og látúni, framleidd á Englandi. Flaskan er handhamruð og skreytt með klassísku fleur-de-lis liljutákni úr látúni að framan. Með leðuról og tappa með keðju.
Hlutur með mikinn karakter og fallega patínu sem hentar vel sem skrautmunur, til dæmis á vegg eða í vintage/retro uppstillingu. Breskur repro-hlutur í eldri stíl.
Efni: Kopar, látún og leður
Uppruni: England
Stíll: Vintage / rustic / traditional English
Notkun: Skrautflaska / veggskraut / safngripur
-
Bloomingville Osca shelf vegghilla
8.500 kr. Setja í körfuVeggfest grind úr málmi með þremur færanlegum hillum og tveimur krókum. Hentar vel undir smáhluti, snyrtivörur eða skraut. Hægt að raða upp á mismunandi vegu.
Kostaði 17500 kr
-
Vintage gólf kertastjaki 6 kerti
6.000 kr. Setja í körfuFallegur grænn gólfkertastjaki. Tekur 6 sprittkerti eða löng kerti í breiðari kantinum. Járn.
-
Vintage bólstraðir stólar 2stk
35.000 kr. Setja í körfuStólarnir eru bólstraðir bæði í setu og baki og nú klæddir svörtu áklæði með skrautnöglum í antikgylltum/látúnslit. Undir svarta áklæðinu er eldra, mynstrað áklæði enn varðveitt – sjá á myndum. Fæturnir eru úr gegnheilli eik.
Falleg blanda af klassískri danskri/europeískri húsgagnagerð og hráum vintage karakter. Stólarnir eru flottir saman en gætu einnig notið sín sem stakir statement-stólar.Uppruni og aldur er óþekkt en stólarnir eru líklegast frá Danmörku og amk 50 ára gamlir ef ekki meir.
-
Áslaug Sigvaldadóttir – Málverk
45.000 kr. Setja í körfuÁslaug Sigvaldadóttir – Tvö samstæð málverk
Titill: Sæti við gluggann (Kona / Karl)
Efni: Olía á striga
Stærð: 35 x 35 cm. hvort verk.

































