Vörur
Stíll
Hönnuður
Framleiðandi
Tímabil
Efni
Litur
Verð
-
Naoko – Carsten Jørgensen fyrir Bodum
24.000 kr. Setja í körfuSjaldgæfur og sérkennilegur teketill úr ryðfríu stáli, hannaður af danska hönnuðinum Carsten Jørgensen fyrir Bodum á 9. áratug síðustu aldar. Hönnunin er skúlptúrísk og minnir á töfrakönnu – með sveigðu handfangi, mjóum stút og hallandi formi. Ketillinn sameinar skandinavíska hreinlínu með sterkri fagurfræði póstmódernismans. Hann var framleiddur í Sviss og er í dag metinn safngripur.
-
Handmálaður vasi – Alfonso Otero Regal
7.000 kr. Setja í körfuFallegur, handmálaður vasi eftir spænska keramiklistamanninn Alfonso Otero Regal. Mótaður og málaður með kúbískum andlitsformum og djúpum litum. Vasi undirritaður „Regal“ neðst.
-
Eggjabikarasett
8.000 kr. Setja í körfuFallegt og skemmtilegt eggjabakkasett. Settið samanstendur af sex eggjaskálum, hver með sínum karakter, ásamt standi sem hægt er að stafla þeim á. Einstakur eldhúsmunur sem sameinar nytsemi og fagurfræði.
-
Ítölsk glerskál
7.000 kr. Setja í körfuFalleg þykk vintage glerskál úr ítalskri framleiðslu. Með klassískri „tortoiseshell“ áferð í heitum brún- og rauðtónum. Merkt Made in Italy.
-
Mattone – HAY
4.900 kr. Setja í körfuHAY Mattone kertastjaki í dökkbláum lit. Nýr óopnaður og enn í kassanum.
H4 x W18.4 x L18.4
Kostar nýr 6.950kr í Epal.
-
OJ Lamp – Louis Poulsen (1stk.)
45.000 kr. Setja í körfuMjög vel farið hvítt Poulsen veggljós til sölu, eins og ný!
-
Tree Coat Wall – Katrín Ólina/Michael Young.
85.000 kr. Setja í körfuHönnuðirnir Michael Young og Katrin Olina ímynda sér að hver grein geti hýst yfirhafnir, jakka, töskur, hatta … Það mun finna sinn stað, allt frá forstofu til fullorðins eða jafnvel barnaherbergis. Katrín Ólína er ein af okkar þekktustu hönnuðum á alþjóðavettvangi og hefur hlotið fjölda virtra alþjóðlegra hönnunarverðlauna. Kostar nýtt í Epal 126.000 kr.
-
EJ220 – Erik Jørgensen
330.000 kr. Setja í körfuEJ220 var hannaður árið 1970 af Erik Jørgensen, stofnanda Erik Jørgensen Møbelfabrik. Markmið Eriks var að brjótast frá hefðbundinni sófahönnun þess tíma og skapa sófa með hreinum línum og mjúkum púðum. Sígildur danskur hönnunargripur, þekktur fyrir tímalausa glæsileika og náttúrulegt þægindi.
Brúnn 3 sæta
Kostar nýr um 700.000 kr
Sófinn var keyptur 2004 eða 2005 -
Grænn Murano vasi
12.000 kr.Original price was: 12.000 kr..6.000 kr.Current price is: 6.000 kr.. Setja í körfuStór og glæsilegur 40cm hár vasi úr handblásnu möttu grænu gleri, umlukinn járngrind með fallegri patínu. Virkar bæði sem vasi og skrautskúlptúr. Glerið er heilt og grindin stöðug. Líklega eftir glerlistakonuna Sadika Keskes
-
Leirvasi
17.000 kr.Original price was: 17.000 kr..13.000 kr.Current price is: 13.000 kr.. Setja í körfuÍslenskur handgerður keramikvasi
-
Penguin lampi – Massive
28.000 kr. Setja í körfuPenguin lampi frá Massive – einstakur postmodern borðlampi frá 1990s, hannaður í Belgíu. Hálógen ljós sem vaggar á fætinum.
-
Semi pendant 60cm – Fog & Mørup
72.000 kr. Setja í körfuSemi Pendant ljósið frá Fog & Mørup er sannkölluð dönsk hönnunarklassík frá 1967. Hönnuðirnir Claus Bonderup og Torsten Thorup vildu skapa lampa með einföldum, hreinum línum sem dreifa birtunni á mjúkan hátt. Þetta sígilda ljós er jafn fallegt nú og þegar það kom fyrst fram á sjónarsviðið. Nútímalegt, tímalaust og alltaf glæsilegt.
Málmyfirborðið er hvítt og þvermál er 60 cm
-
Falling Leaves – Bing & Grøndahl
78.000 kr. Setja í körfuVeglegt stell frá Bing & Gröndahl úr línunni Fallandi lauf.
Stellið inniheldur
12 bolla ásamt undirskálum
12 kökudiskar
1 stór skál á fæti
2 stórir diskar
4 laufadiskar
1 eggjabikar
1 mjólkurkanna
1 stór skál á standi
2 snaps glös -
Dora – Weimar Porcelain
45.000 kr. Setja í körfuBollastell frá Weimar Porzellan úr línunni Dora.
Stellið inniheldur
12 tebolla
9 undirskálar
11 kökudiskar -
Flamestone Fluted Brown – Jens Harald Quistgaard
75.000 kr. Setja í körfuFluted Flamestone brúna stellið frá Dansk Designs er eitt af helstu verkum danska hönnuðarins Jens Harald Quistgaard, sem var aðalhönnuður fyrirtækisins frá 1954 í þrjá áratugi. Þetta steinleirstell var hannað árið 1958 og einkennist af dökkbrúnu, mattu gljálausu yfirborði með lóðréttum rennilínum sem gefa því sérstakt yfirbragð. Stellið sameinar skandinavíska einfaldleika og notagildi og var framleitt í Danmörku.
Inniheldur:
18 kaffibolla ásamt undirskálum
21 kökudiska
1 sykurkar -
Y61 kollur – Alvar Aalto
95.000 kr. Setja í körfuSjaldgæfur Model Y61 kollur eftir finnska hönnuðinn Alvar Aalto, með svörtu sæti og sveigðum beykifótum. Kollurinn framleiddur á bilinu 1960–1980, í góðu vintage ástandi með slitsterku sæti og fallegri náttúrulegri patínu í viðnum. Hentar jafnt sem aukasæti, hliðarborð eða safngripur – tímalaus hönnun með karakter.
Sjaldgæf útgáfa sem er ekki lengur í framleiðslu. Tækifæri til að eignast ekta Aalto koll með handofnu sæti.
-
SERA – Prandina
25.000 kr.Original price was: 25.000 kr..17.500 kr.Current price is: 17.500 kr.. Setja í körfu -
Mirror Ball 25 cm – Tom Dixon
45.000 kr.Original price was: 45.000 kr..31.500 kr.Current price is: 31.500 kr.. Setja í körfuMirror Ball Pendant 25 cm – Tom Dixon
ALLRA NÝJASTA
-
Grétar Reynisson (1957) Málverk
110.000 kr. Setja í körfuMálverk eftir Grétar Reynisson myndlistarmann og Leikmyndahönnuð
Ártal: 1986
Án titils
Efni: Olía á striga
Stærð: 30 x 40 cm. -
Þórdís Alda Sigurðardóttir (1950) Ljósmynd
27.000 kr. Setja í körfuÞórdís Alda Sigurðardóttir – Ljósmynd á striga
Titill: Þvottadagur
Stærð: 45 x 25 cm.
“Þórdís Alda Sigurðardóttir (f. 1950 í Reykjavík) er myndlistarkona sem býr og starfar í Mosfellsbæ og Skagafirði. Hún nam við Kennaraháskóla Íslands, Myndlistarskóla Reykjavíkur, Mynd- og handíðaskóla Íslands og Akademie der Bildenden Künste í München, Þýskalandi. Þórdís hefur verið virkur þátttakandi í myndlistarlífi Íslands í áratugi og tekið þátt í fjölda sýninga hérlendis og erlendis.” -
Guðrún Öyahals (1964) Málverk
190.000 kr. Setja í körfuMálverk eftir Guðrúnu Öyahals myndlistarmann og leikmyndahönnuð.
Án titils
Ártal: 1997
Efni: Olía á striga
Stærð: 60 x 100 cm.
Vefsíða: https://www.stugo.art/ -
Sigurður Örlygsson (1946-2019) Vatnslitaverk
140.000 kr. Setja í körfuSigurður Örlygsson – Málverk
Titill: Trompetleikarinn (verkið er hluti af seríu verka af tónlistamönnum)
Efni: Vatnslitur
Stærð Myndar: 36 x 27 – Stærð ramma 57 x 33 cm.
“Sigurður Örlygsson fæddist í Hafrafelli í Laugardalnum í Reykjavík, 28. júlí 1946. Hann stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands árin 1967-71, Det Kongelige Danske Kunstakademi hjá prófessor Richard Mortensen 1971-72 og síðar við Art Students League of New York 1974-75. Þá kenndi hann við Myndlista- og handíðaskólann lengi og síðar Listaháskóla Íslands og Myndlistarskólann í Reykjavík. Sigurður hélt fjölda einkasýninga og samsýninga meðan hann starfaði, jafnt innanlands og utan. Hann hlaut Menningarverðlaun DV árið 1989 og af og til úhlutun frá starfslaunum listamanna.” -
Þórður Hall – Silkiþrykk
95.000 kr. Setja í körfuSilkiþrykk eftir Þórð Hall. (1949)
Titill: Í gróandanum I – E/Þ
Ártal: 1981
Stærð myndar: 50 x 45 – Stærð með ramma 73 x 6″
Þórður Hall has always used nature as his subject, and in his screen prints made between 1979 and 1987, that subject was the geometry of the Icelandic landscape—conical mountains, waterfalls, and glaciers simplified into basic forms and colors.”Nú stendur yfir sýning á verkum hans í Gallerí I8
-
Vintage mid century skrautflaska frá Englandi
6.000 kr. Setja í körfuFalleg vintage skrautflaska úr kopar og látúni, framleidd á Englandi. Flaskan er handhamruð og skreytt með klassísku fleur-de-lis liljutákni úr látúni að framan. Með leðuról og tappa með keðju.
Hlutur með mikinn karakter og fallega patínu sem hentar vel sem skrautmunur, til dæmis á vegg eða í vintage/retro uppstillingu. Breskur repro-hlutur í eldri stíl.
Efni: Kopar, látún og leður
Uppruni: England
Stíll: Vintage / rustic / traditional English
Notkun: Skrautflaska / veggskraut / safngripur
-
Bloomingville Osca shelf vegghilla
8.500 kr. Setja í körfuVeggfest grind úr málmi með þremur færanlegum hillum og tveimur krókum. Hentar vel undir smáhluti, snyrtivörur eða skraut. Hægt að raða upp á mismunandi vegu.
Kostaði 17500 kr
-
Vintage gólf kertastjaki 6 kerti
6.000 kr. Setja í körfuFallegur grænn gólfkertastjaki. Tekur 6 sprittkerti eða löng kerti í breiðari kantinum. Járn.
-
Vintage bólstraðir stólar 2stk
35.000 kr. Setja í körfuStólarnir eru bólstraðir bæði í setu og baki og nú klæddir svörtu áklæði með skrautnöglum í antikgylltum/látúnslit. Undir svarta áklæðinu er eldra, mynstrað áklæði enn varðveitt – sjá á myndum. Fæturnir eru úr gegnheilli eik.
Falleg blanda af klassískri danskri/europeískri húsgagnagerð og hráum vintage karakter. Stólarnir eru flottir saman en gætu einnig notið sín sem stakir statement-stólar.Uppruni og aldur er óþekkt en stólarnir eru líklegast frá Danmörku og amk 50 ára gamlir ef ekki meir.
-
Áslaug Sigvaldadóttir – Málverk
45.000 kr. Setja í körfuÁslaug Sigvaldadóttir – Tvö samstæð málverk
Titill: Sæti við gluggann (Kona / Karl)
Efni: Olía á striga
Stærð: 35 x 35 cm. hvort verk.

































